Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:59 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:59 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:59 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:59 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:59 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:59 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Líkt og undanfarin 16 ár býður Húnahornið lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Við biðlum til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.
Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu - Smelltu hér.
Lesendur Húnahornsins völdu Valdimar Guðmannsson sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2020. Valdimar hefur unnið mikið og óeigingjarna starf fyrir kirkjugarðinn á Blönduósi og verið jákvæður og hvetjandi á margan hátt fyrir samfélagið sitt. Hann hefur meðal annars staðið fyrir vinsælum kótelettukvöldum á Blönduósi, stutt samfélagsverkefni á svæðinu og verið óþreytandi að tala jákvætt um allt sem húnvetnskt er.
Þetta er í 17. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu.
Valið stendur til miðnættis 21. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt degi síðar.
Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:
2020: Valdimar Guðmannsson
2019: Björgunarsveitarfólk í Björgunarfélaginu Blöndu
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzon Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |