Fréttir | 30. desember 2021 - kl. 13:20
Flugeldamarkaður í Húnabúð

Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Húna er á fullum gangi í Húnabúð á Hvammstanga. Opið er í dag til klukkan 22 og á morgun 9-16. Einnig er hægt að versla í vefverslun sem opin er allan sólarhringinn, slóðin er hunar.flugeldar.is. Hægt er að versla heima og eru pantanir afgreiddar á opnunartíma flugeldamarkaðsins.

Engin áramótabrenna verður á Hvammstanga á gamlárskvöld en flugeldasýning fer fram klukkan 21. Skotið verður upp frá norðurgarði Hvammstangahafnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga