Baðvogin
Baðvogin
Fréttir | 30. desember 2021 - kl. 13:32
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga gáfu góðar gjafir á árinu

Heilbrigðisstofnunin á Hvammstanga hefur fengið tvær góðar gjafir á árinu frá Hollvinasamtökum stofnunarinnar; fimm rúmdýnur að verðmæti 345.400 krónur og baðvog, m.a. fyrir hjólastóla, að verðmæti 730.000 krónur en hún er greidd að hálfu á móti Krabbameinsfélagi Hvammstangalæknishéraðs.

Í tilkynningu frá hollvinasamtökunum þakka þau öllum þeim sem styrkt hafa samtökin á árinu með fjárframlögum og kaupum á minningarkortum og sendir öllum bestu nýárskveðjur.

Bankareikningur samtakanna er: 0159-15-200135 kt. 711006-2140 fyrir þá sem vilja greiða árgjald 1.000 krónur eða að eigin vali og styrkja samtökin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga