Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:50 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Almennar samkomutakmarkanir verða tíu manns, heimild til aukins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum fellur brott, hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns og skemmtistöðum, krám og spilakössum verður lokað. Þetta er megininntak hertra sóttvarnaráðstafana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og byggjast á tillögum sóttvarnalæknis. Gildandi takmarkanir á skólastarfi verða óbreyttar.
Reglugerð um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands gilda frá og með laugardeginum 15. janúar til og með 2. febrúar næstkomandi.
Gripið er til hertra ráðstafana með hliðsjón af fyrirliggjandi spám um fjölgun smita af völdum Covid-19 og sjúkrahússinnlögnum á næstu vikum og mikils og vaxandi álags á heilbrigðiskerfið, sérstaklega á Landspítala. Samhliða er markvisst unnið að því að styrkja Landspítala og auka getu hans til að mæta miklu álagi.
Megininntak reglna um samkomutakmarkanir með þeim breytingum sem verða á miðnætti
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 10 manns.
- Áfram 2 metra nálægðarmörk og óbreyttar reglur um grímuskyldu.
- Áfram 20 manns að hámarki í rými á veitingastöðum og óbreyttur opnunartími.
- Sviðslistir heimilar með allt að 50 áhorfendum í hólfi.
- Heimild til aukins fjölda með hraðprófum fellur brott.
- Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði áfram með 50% afköst.
- Íþróttakeppnir áfram heimilar með 50 þátttakendum en án áhorfenda.
- Hámarksfjöldi í verslunum fari úr 500 í 200 manns.
- Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum verður lokað.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |