Fréttir | 18. janúar 2022 - kl. 19:59
Skagaströnd lýst upp um helgina

Nes listamiðstöðin á Skagaströnd ætlar að lýsa upp Skagaströnd með þátttöku listamanna sem munu búa til alls konar listaverk með lýsingu. Það verður gert með því að nota LED ljós til að varpa birtu, búa til skugga, endurskin og fleira víða um Skagaströnd og með listagöngu fyrir íbúa Norðurlands vestra dagana 22. og 23. janúar frá klukkan 18-21:30.

Á vef Skagastrandar segir: „Óáþreifanleiki ljóssins getur breytt skynjun okkar á hugtakinu „rými“ og Nes listamiðstöð hefur valið listamenn frá Austurríki, Hollandi, Grikklandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Kanada sem munu búa til stórar innsetningar og varpanir með því að nota ljós á frumlegan og skapandi hátt, einnig bjóða upp á gerð lukta með börnum og lýsandi vinnustofur. Þessi viðburður er hannaður með þátttöku samfélagsins í huga til að breikka sýn okkar á hvað er „list“.“

Allir eru hvattir til að koma í heimsókn til Skagastrandar meðan á viðburðinum stendur, ganga um bæinn og bjóða bjartara og skærara árið 2022 velkomið.

Viðburðurinn er aðeins mögulegur með stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, Minningarsjóðnum um hjónin frá Garði og Vindhæli, Kaupfélagi Skagfirðinga, Samkaupi og ómetanlegri aðstoð frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga