Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:03 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:03 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:03 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:03 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:03 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:03 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarstjórn Skagastrandar hvetur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að hverfa frá 1.500 tonna niðurskurði aflaheimilda til strandveiða á árinu. Sveitarstjórn telur að embættisverk ráðherra ættu að miða að því að tryggja strandveiðiflotanum nægar heimildir til þess að stunda veiðar 48 daga á ári enda myndi slíkt styrkja sjávarbyggðir um land allt.
Þetta kemur fram í bókun sveitarstjórnar frá fundi sínum í gær. Í henni kemur fram að á síðasta fiskveiðiári hafi 34 bátar landað strandveiðiafla á Skagaströnd og hafi hann numið um 613 tonnum eða um 5% strandveiðiafla á landinu öllu. Umtalsverð nýliðun hafi átt sér stað innan smábátaútgerðar á Skagaströnd á undanförnum árum sem tengja megi beint við strandveiðikerfið.
Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur að undanförnu verið gagnrýnd af strandveiðisjómönnum fyrir að láta skert aflamark í þorski verða til þess að 15% skerðing verði á aflaheimildum sem ætlað er strandveiðum. Í fyrra var veiðunum veittar heimildir fyrir 10.000 tonnum af þorski en í ár verða það að óbreyttu 8.500 tonn.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |