Fréttir | 20. janúar 2022 - kl. 17:01
Styrkhafar Uppbyggingarsjóðs 2022

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsti í október eftir umsóknum á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar fyrir árið 2021, með umsóknarfresti til 12. nóvember. Alls bárust 115 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 200 milljónum króna. Alls fengu 78 umsóknir brautargengi, samtals að upphæð rúmar 77 milljónir. Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar fengu 24 umsóknir styrk samtals að fjárhæð rúmar 40 milljónir og á sviði menningar var samþykkt að styrkja 54 umsóknir með tæpum 37 milljónum.

Í ljósi samkomutakmarkana verður ekki haldin úthlutunarhátíð að þessu sinni, að því er segir á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þar kemur einnig fram að fjármagn Uppbyggingarsjóðsins sé hluti af samningi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við stjórnvöld um framkvæmd Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2020-2024.

Hæstu styrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunar:

  • Nordpro. Endurbættir framleiðsluferlar fyrir Collagenvörur, 3.860.000 kr.
  • Sjávarlíftæknisetrið BioPol. Biorefinery of red algae for multiple high-value products, 3.765.000 kr.
  • Sýndarveruleiki ehf. Sturlunga í okkar höndum, 3.000.000 kr.
  • Kavita. Frostþurrkari fyrir fæðubótarefni, 2.750.000 kr.
  • Margrét Eva Ásgeirsdóttir. Lífrænar hampafurðir, vöruþróun, 2.653.000 kr.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir. Tilbúnir grænmetisréttir, 2.287.000 kr.
  • Skotta. Sjö sjónvarpsþættir, 2.060.000 kr.
  • Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirðir. Réttir Food Festival, 2.002.500 kr.

Hæstu styrkir á sviði menningar:

  • Handbendi brúðuleikhús. Hvammstangi International Puppetry Festival 2022, 2.000.000 kr.
  • Maður og kona ehf. Finnbogi Pétursson í gamla bænum, 1.800.000 kr.
  • Skíðadeild Umf. Tindastóls. Tinda-stuð, 900.000 kr.
  • Hlín ehf. Austurdalurinn, 750.000 kr.
  • Textílmiðstöð Íslands og Þróunarsetur á Blönduósi. Prjónastjarna á Prjónagleði 2022, 700.000 kr.
  • Textílmiðstöð Íslands og Þróunarsetur á Blönduósi. Óslitinn þráður, 600.000 kr.
  • Benmen slf. Allt milli himins og fjarðar, 500.000 kr.
  • Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna. Rekaviður, bátar og búsgögn, 500.000 kr.
  • Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Þverfaglegt samstarf safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra, 500.000 kr.
  • Jóhann Daði Gíslason. Jólin heima, 500.000 kr.
  • Slysavarnadeildin Skagaströnd. Hetjur hafsins, 500.000 kr.

Hæstu stofn- og rekstrarstyrkir:

  • Samgöngusafnið Stóragerði, 2.200.000 kr.
  • Menningarfélagið Spákonuarfur, 2.100.000 kr.
  • Sýndarveruleiki ehf. 1238 Baráttan um Ísland, 2.100.000 kr.
  • Selasetur Íslands, 2.100.000 kr.
  • Kakalaskáli. Sögu- og listasýningar, 2.000.000 kr.
  • Sögusetur íslenska hestsins, 1.500.000 kr.

Í skýrslu Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra er ítarlega fjallað um sjóðinn, úthlutanir og styrkþega.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga