Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 21. janúar 2022 - kl. 10:22
Minnt á umsóknarfrest frístundakorta á Skagaströnd

Á vef Skagastrandar er minnt á að umsóknarfrestur um frístundakort fyrir 2021 rennur út 31. janúar næstkomandi. Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 25 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frístundakortin taka gildi 1. janúar ár hvert og gilda í eitt ár.

Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður.

Tilgangur frístundakorta er að hvetja börn og unglinga til þátttöku í hvers konar íþrótta- og æskulýðsstarfi og að jafna möguleika foreldra til að börnum sé það mögulegt.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga