Tilkynningar | 19. apríl 2022 - kl. 16:24
Stórbingó í Húnavallaskóla

Á morgun, miðvikudaginn 20. apríl, er loksins komið að því að 9. og 10. bekkur Húnavallaskóla, halda hið árlega Stórbingó í íþróttasal skólans! Húsið opnar klukkan 19:30 og byrjað verður að spila klukkan 20:00. Allir velkomnir! Glæsilegir vinningar.

Allir geta unnið eitthvað því það verður tombóla og þar eru engin núll. Sjoppan verður að sjálfsögðu opin.

Miðaverð:
16 ára og eldri - 3000 kr.
7 – 15 ára - 1000 kr.

Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri

Aukaspjöld kosta 300 kr.

Að bingói loknu verður æðislegt kaffihlaðborð sem foreldrar okkar eru búnir að baka fyrir og er það innifalið í aðgangseyrinum.

Að bingói loknu verður dansað til miðnættis. Mætum og skemmtum okkur ótrúlega vel !

8., 9.og 10. bekkingar Húnavallaskóla

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga