Tilkynningar | 20. apríl 2022 - kl. 09:10
Áhersluatriði eldra fólks í komandi sveitarstjórnarkosningum
Frá félagi eldri borgara í Húnaþingi

Eldra fólk vill hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi. Meðfylgjandi eru áhersluatriði eldra fólks í komandi sveitarstjórnarkosningum:

Lágmarkslifeyrir fylgi lágmarkslaunum

Það er sameiginlegt markmið þeirra sem koma að sveitarstjórn að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði eldra fólks. Það er því eðlileg krafa að lágmarkslífeyrir fólks verði aldrei lægri en umsamin lágmarkslaun á almennumk vinnumarkaði. Viðvarandi fjárhagslegt óöryggi skerðir lífsgæði eldra fólks, stuðlar að verra heilsufari og minnkar möguleika til sjálfsbjargar.

Fjölbreytt búseta eldra fólks

Stórkostlegur vandi blasir við á húsnæðismarkaði. Í skipulagsmálum verður að gera kröfu um að hluti byggingasvæða verði ætlaður fyrir félagslegar íbúðir og leiguíbúðir fyrir eldra fólk og eðlilegt að sveitarstjórnir hlutist til um byggingu leiguíbúða fyrir eldra fólk á viðráðanlegu leiguverði. Mikilvægt að endurskoða reglur um húsnæðisbætur.

Lífsgæðakjarnar ,svar við kröfu um öryggi og samveru

Fjölga þarf lífsgæðakjörnum þar sem heimili og þjónusta er tengd saman. Í Lifsgæðakjörnum er að finna minni leiguíbúðir sem tengjast hvers konar þjónustu, skapa öryggi og samveru. Eldra fólk krefst fjölbreyttari búsetuúrræða með valfrjálsri þjónustu í tengslum við þjónustumiðstöðvar og heilsugæslu. Velferðartækni ætti að vera mikilvægur þáttur í öryggi og bættri aðstöðu í heimahúsum eldra fólks.

Heilsugæslan verði miðstöð heilsueflingar sveitarfélaga

Rík og sveitarfélög þurfa að stórauka samvinnu sína með það að markmiði að heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar í sveitarfélögunum. Heilsugæslan og sveitarfélögin nálgist fólk fyrr á lífsleiðinni með skipulagðri hvatningu til heilsueflingar og aukins heilsulæsis. Styðja þarf við möguleika á heilsueflingu á vegum sveitarfélaga, íþróttafélaga og félaga eldra fólks um allt land. Gerður verði sérstkur samningur milli sveitarfélaga, ríkisins, íþróttahreyfingarinnar og félaga eldra fólks um fjármögnun og framkvæmd heilsueflingarátaks meðal eldra fólks.

Fórnarlömb reksturs hjúkrunarheimila

Veikt eldra fólk er fórnarlömb langvarandi skorts á hjúkrunarrými og þolendur mannréttindabrota. Eldra fólk dvelur vikum og mánuðum saman á Landsspítalanum þvert ofan í gildandi lög og reglur. Mjög aðkallandi er að endurskoða reglur um greiðsluþáttöku, aðgang að heilbrigðisþjónustu, hjálpartækjum og annarri þjónustu á hjúkrunarheimilum.

Afsláttur af fasteignagjöldum

Afsláttur sveitarfélaga af fasteignagjöldum er mikilvægur til að draga úr húsnæðiskostnaði eldra fólks en hann er mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Mikilvægt er að afslátturinn breytist í takti við hreyfingar á fasteignasköttum og þannig tryggt að hann haldi verðgildi sínu.

FESTA ÖLDUNGARÁÐ Í SESSI

Mikilvægt að öldungaráð hafi skýra stjórnsýslulega stöðu í skipulagi sveitarfélaga og þeim gert kleift að gegna því mikilvæga hlutverki sem lög kveða á um.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga