Tilkynningar | 28. apríl 2022 - kl. 14:43
Opinn fundur og opnun kosningaskrifstofu
Tilkynning frá B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna

Opinn fundur með Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins og Stefáni Vagni Stefánssyni þingmanni. Fundurinn verður haldinn í Glaðheimum laugardaginn 30. apríl og hefst kl. 19:00. Létt spjall og heitt á könnunni.

B-listinn listi Framsóknar og annarra framfarasinna opnar kosningaskrifstofu sína sunnudaginn 1. maí kl. 15:00 að Þverbraut 1 í Samstöðusalnum á annarri hæð.

Stefnuskrá fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar verður kynnt. Heiðursgestur verður Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður kjördæmisins.

Vöfflukaffi og allir velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga