Tilkynningar | 01. maí 2022 - kl. 09:25
Opinn fundur með þingflokki Sjálfstæðisflokks
Tilkynning frá D-listi, Sjálfstæðismanna og óháðra

Þingflokkur Sjálfstæðisflokkins er á hringferð um landið og þriðjudaginn 3. maí kl. 20 gefst íbúum kostur á að hitta ráðherra og þingmenn flokksins á kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna og óháðra, í Félagsheimilinu á Blönduósi. 

Frambjóðendur Sjálfstæðismanna og óháðra hafa undirbúið heimsóknina vel og kynnt m.a. fyrir þingmönnum og ráðherrum helstu málefni sem brenna á samfélaginu. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir fámennt sveitarfélag líkt og okkar, að ná til eyrna þingmanna og ráðherra. Í því felst styrkur og þar stöndum við vel að vígi, frambjóðendur Sjálfstæðismanna og óháðra. 

Við hvetjum íbúa og aðra áhugasama að mæta á kosningaskrifstofuna n.k. þriðjudag kl. 20 og ræða málin. 

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga