Fréttir | Tilkynningar | 01. maí 2022 - kl. 21:58
Opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna og óháðra
Tilkynning frá D-listi, Sjálfstæðismanna og óháðra

Fimmtudaginn 28. apríl sl. opnuðu Sjálfstæðismenn og óháðir á Blönduósi og í Húnavatnshreppi kosningaskrifstofu sína í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Guðmundur Haukur Jakobsson, oddviti framboðsins, flutti stutta tölu þar sem hann fór yfir þau mál sem unnist hafa á síðasta kjörtímabili. Vakti hann sérstaklega athygli á byggingu verknámshúss sem nýverið var tekið í notkun við Blönduskóla, öfluga ljósleiðaravæðingu Húnanets og uppbyggingu skólalóðarinnar við Blönduskóla en saman mynda skólalóðin og sundlaugin einn vinsælasta áningarstað ferðamanna á svæðinu. Þá sagði hann einnig frá þeirri undirbúningsvinnu sem átt hefur sér stað vegna flugvallarins á Blönduósi en hann hefur um langt skeið verið skilgreindur sem sjúkraflugvöllur en ekki verið unnt að starfrækja hlutverk sitt sem skildi vegna lélegs viðhalds. Á kjörtímabilinu hefur þó ýmislegt verið unnið til bóta, m.a. með sérstökum aðflugsljósabúnaði. Með sameiningu sveitarfélaganna fylgja bæði áskoranir og tækifæri, í því samhengi nefndi Guðmundur Haukur að íbúar muni njóta rekstrarhagræðingar vegna sameiningar skóla og boða Sjálfstæðimenn og óháðir lækkun leikskólagjalda sem og gjaldfrían morgunverð í skóla.

Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi, var sérstakur gestur opnunarinnar og ávarpaði samkomuna. Hann gaf frambjóðendum góð ráð og minnti á það að við sameiningu sveitarfélaga í eina heild verði ávallt að taka mið af því að innan nýs sveitarfélags eru mörg samfélög sem þarf ávallt að taka mið af við alla stefnumótun. Þá útskýrði hann einnig fyrir gestum opunarinnar hví ljósleiðaravæðing í þéttbýli er mun styttra á veg komin en í dreifbýli.

Opnunin var vel sótt, málefni framboðsins voru kynnt stuttlega og frambjóðendur ræddu við gesti og gangandi. Dagskrá kosningaskrifstofunnar verður fjölbreytt fram að kjördegi, boðið verður upp á uppákomur á borð við heimsóknir þingmanna og ráðherra, fjölskylduskemmtun, PubQuiz og opin kvöld.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga