Tilkynningar | 03. maí 2022 - kl. 23:27
Framsókn og aðrir framfarasinnar opna kosningaskrifstofu
Tilkynning frá B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna

Framsókn og aðrir framfarasinnar opnuðu kosningaskrifstofu sína á sunnudaginn með húsfylli. Gestir snæddu dýrindis Vilkovöfflur og mikil og góð stemming var á opnuninni. Auðunn Sigurðsson, oddviti framboðsins, bauð alla velkomna og sagði frá því að undanfarnar vikur hefðu verið notaðar til að setja saman málefnaskrá framboðsins. Málefnaskráin var kynnt á opnuninni en búið var að kynna fyrsta hluta hennar á heimasíðu framboðsins á Facebook og Instragram. Þá kom einnig fram að hefðbundinn kosningabæklingur yrði borinn í hús í vikunni.

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrsti þingmaður kjördæmisins, ávarpaði gesti og hvatti frambjóðendur til dáða. Kosningaskrifstofan verður opin nær daglega fram að kosningum og uppákomur verða einnig fram að kosningum ásamt því að Ásmundur Einar Daðason ráðherra mun heimsækja frambjóðendur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga