Alma og Valdimar undirrita samninginn. Mynd: blonduos.is
Alma og Valdimar undirrita samninginn. Mynd: blonduos.is
Fréttir | 06. maí 2022 - kl. 20:56
Blönduósbær aðili að Heilsueflandi samfélagi

Í dag gerðist Blönduósbær formlegur aðili að Heilsueflandi samfélagi þegar Valdimar O Hermannsson sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis. Athöfnin fór fram í matsal Blönduskóla. Valdimar sveitarstjóri flutti stutt ávarp og krakkarnir á elstu deild leikskólans Barnabæjar, ásamt nokkrum nemendum Blönduskóla úr 1.-4. bekk, sungu tvö lög fyrir gesti.

Því næst var Alma D. Möller með kynningu á Heilsueflandi samfélagi. Að undirritun lokinni var boðið upp á hollar veitingar. Sagt er frá þessu á vef Blönduósbæjar.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga