Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 09. maí 2022 - kl. 09:27
Heilsueflandi samfélag í Húnaþing vestra

Á föstudaginn undirrituðu Alma D. Möller landlæknir og Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, samning um innleiðingu Heilsueflandi samfélags í Húnaþingi vestra. Með samningnum skuldbindur Húnaþing vestra sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags í sveitarfélaginu í samræmi við samninginn. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

„Með undirskrift samnings um Heilsueflandi samfélag einsetja sveitarfélög sér að vinna markvisst lýðheilsustarf, í samræmi við markmið og leiðarljós Heilsueflandi samfélags með stuðningi frá Embætti landlæknis og öðrum sem að starfinu koma. Í markvissu lýðheilsustarfi er bilið á milli gagna, stefna og aðgerða brúað með því að nota lýðheilsuvísa, gátlista og önnur gögn til að meta stöðuna og forgangsraða í samræmi við þarfir hvers samfélags. Miðlægt vefkerfi, sem er í þróun, styður samfélög í að halda utanum starfið, meta framvindu þess og miðla áfram,“ segir á vefnum.

Stýrihópur um innleiðingu Heilsueflandi samfélags í Húnaþingi vestra hefur nú þegar tekið til starfa og er verkefnastjóri hópsins Tanja Ennigarð íþrótta og tómstundafulltrúi. Í starfshópnum sitja að auki sviðsstjóri fjölskyldusviðs, skólastjórnendur og skólahjúkrunarfræðingur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga