Á Húnavöllum. Mynd: felahun.is
Á Húnavöllum. Mynd: felahun.is
Fréttir | 11. maí 2022 - kl. 10:28
Lærdómssamfélag í leik- og grunnskólum í Austur-Húnavatnssýslu

Starfsfólk leik- og grunnskóla í Austur-Húnavatnssýslu hafa verið að vinna að þróunarverkefni um lærdómssamfélag í vetur undir handleiðslu Önnu Kristínar Sigurðardóttur prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfsfólk fékk tækifæri til að dýpka þekkingu sína á áhugasviðum þvert á skóla og skólastig.

Markmiðið með verkefninu í vetur var að skapa menningu lærdómssamfélags sem styður við samstarf, starfsþróun og gagnvirkt nám starfsmanna til að efla nám nemenda, að því er segir á vef Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Haldin var lokahátíð á Húnavöllum þar sem þátttakendur sýndu afrakstur vetrarins en hóparnir lögðu meðal annars áherslu á mál og læsi, stærðfræði, upplýsingatækni, teymiskennslu og lýðheilsu og upplýsingamennt. Verkefnin sem voru kynnt bera vott um grósku í skólastarfi á svæðinu.

Í lok dags fékk starfsfólk að hlýða á fyrirlestur Ragnhildar Vigfúsdóttur markþjálfa sem nefnist „Hvort viltu vera gleðigjafi eða fýlupúki?“ Ragnhildur leitar í verkfærakistu jákvæðrar sálfræði þar sem talað er um styrkleika, jákvæðar tilfinningar og hamingjuaukandi aðgerðir í lífi og starfi.

Sjá má fleiri myndir á vef Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga