Tilkynningar | 11. maí 2022 - kl. 20:13
Lengri opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra

Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 14. maí 2022. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þann 15. apríl sl. og lýkur kl. 17:00 á kjördag. 

Fimmtudaginn 12. maí nk. verður opið til kl. 19:00 á aðalskrifstofu sýslumanns að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi og sýsluskrifstofu Suðurgötu 1, Sauðárkróki.

Kjósendur skulu framvísa gildum persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, Sauðárkróki 11. maí 2022

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga