Fréttir | 12. maí 2022 - kl. 10:37
Hvað á sameinað sveitarfélag að heita?

Samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardaginn verður hægt að taka þátt í könnun á viðhorfi íbúa til tillagna að nafni á sameinað sveitarfélag Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Könnunin fer fram á kjörstöðum á opnunartíma þeirra sem er frá klukkan 10 til 20. Niðurstöður könnunarinnar eru ekki bindandi og tekur ný sveitarstjórn ákvörðun um nýtt nafn þegar hún tekur til starfa.

Tillögurnar eru þrjár:

  • Blöndubyggð
  • Húnavatnsbyggð
  • Húnabyggð

Þeir sem eiga ekki heimangengt á kjördag eða kjósa utankjörfundar geta tekið þátt í könnuninni með því að greiða atkvæði á skrifstofum sveitarfélaganna á hefðbundnum opnunartíma fram að kjördegi:

  • Skrifstofa Blönduósbæjar er opin alla virka daga frá kl. 09:00-15:00
  • Skrifstofa Húnavatnshrepps er opin mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga kl. 10-16 og föstudag kl. 10-12. Lokað er á miðvikudögum.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga