Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:11 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, undirritaði í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefni sem styður við nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið í tengslum við sóknaráætlanir sveitarfélaga.
Með undirritun sinni lýsa umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Eimur þeim vilja sínum að stuðla, í gegnum Norðanátt, sameiginlega að nýsköpun á Norðurlandi með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið.
Samstarfsverkefnið Norðanátt er nýsköpunarhreyfing sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Norðanátt vinnur þvert á helstu stofnanir samfélagsins og sækir styrk sinn til sveitarfélaga, atvinnulífsins, frumkvöðla og öflugs stuðningsumhverfis frumkvöðla á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðuneytið mun styrkja verkefnið um 20 milljónir króna.
„Loftslagsmálin eru ein stærsta áskorun sem Ísland og heimurinn allur stendur frammi fyrir. Hringrásarhagkerfið er mikilvægur liður í lausn á þeim vanda og skiptir nýsköpun, þátttaka samfélags og atvinnulífs miklu máli. Þar má enginn verða útundan og mikilvægt að allir landshlutar taki þátt. Þess vegna er ánægjulegt að vera með í þessu góða samstarfi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |