Fréttir | 15. maí 2022 - kl. 13:37
Fyrsti sigurinn í höfn

Kormákur Hvöt kom sá og sigraði í annarri umferð Íslandsmótsins í kattspyrnu karla 3. deild í gær. Þá heimsótti liðið HÍ til Hafnarfjarðar og úr varð bráðskemmtilegur knattspyrnuleikur. Viktor Ingi Jónsson kom gestunum yfir strax á 13. mínútu en heimamenn jöfnuðu leikin rétt áður en flautað var til hálfleiks. Í upphafi seinni hálfleiks kom Ante Marcic Kormáki Hvöt aftur yfir í leiknum með góðu marki.

Á 68. mínútu jöfnuðu heimamenn leikinn að nýju en þremur mínútum fyrir leikslok skoraði Ante Marcic sitt annað mark og kom Kormáki Hvöt yfir í þriðja skiptið í leiknum. HÍ reyndi allt til að jafna leikinn á þeim fáu mínútum sem eftir lifðu en tókst ekki. Lokatölur 2-3 fyrir Kormák Hvöt sem fékk sín fyrstu stig í 3. deildinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga