Fréttir | 17. maí 2022 - kl. 11:57
Vinnuskóli Skagastrandar hefst þriðjudaginn 7. júní og lýkur föstudaginn 29. júlí. Hann er fyrir nemendur, búsetta á Skagaströnd, sem hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla. Markmið vinnuskóla er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. Skráning í vinnuskólann er á skrifstofu sveitarfélagsins eða í gegnum rafræna umsókn.
Rafræn umsókn fyrir 8-9 bekk má finna hér.
Rafræn umsókn fyrir 10 bekk má finna hér.