Fréttir | 17. maí 2022 - kl. 12:04
Jafnari kynjahlutföll í sveitarstjórnum

Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eru niðurstöður í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum í landshlutanum skoðaðar nánar út frá kynjahlutföllum og nýliðun. Þar kemur fram að nú eru konur 49% sveitarstjórnarfulltrúa og karla 51%, samanborið við 44% konur og 56% á nýliðnu kjörtímabili. Hæst hlutfall kvenna er á Skagaströnd þar sem 80% sveitarstjórnarfulltrúa eru konur eða fjórar og af fimm. Lægst er það í Húnaþingi vestra eða 29% konur.

Af 35 sveitarstjórnarfulltrúum í landshlutanum eru 54% þeirra nýliðar, samanborið við 67% á síðasta kjörtímabili. Með nýliðum er átt við aðalmenn sem ekki sátu kjörtímabilið á undan en í þeim hópi eru einhverjir sem eru að koma inn í sveitarstjórnir að nýju eftir hlé í eitt kjörtímabili eða meira. Nýliðunin er mest í í sameinuðu sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps en þar eru 67% fulltrúa nýir eða sex af níu. Minnst er hún í Húnaþingi vestra þar sem 29% fulltrúa eru nýir í sveitarstjórn eða tveir af sjö.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga