Tilkynningar | 23. júní 2022 - kl. 20:26
Kvennareið í Austur-Húnavatnssýslu
Frá nefndinni

Hin (næstum) árlega kvennareið í Austur-Húnavatnssýslu verður farin laugardaginn 2. júlí næstkomandi. Lagt verður af stað frá Hæli klukkan 14:00 og endað í reiðhöllinni á Blönduósi síðdegis, en þar verður grillað og haft gaman. Þema í ár er frjálst skraut. Dregið verður í happdrætti og aldrei að vita nema einhver mæti með gítarinn.

Skráningargjald er 3.500 kr. (ath. enginn posi) og má skrá sig hjá Angelu í síma 869-5923, á Messenger eða á netfangið laekjardalur@simnet.is. Skráningarfrestur er út þriðjudaginn 28. júní.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Nefndin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga