Sr. Gísli Gunnarsson. Mynd: kirkjan.is/hsh
Sr. Gísli Gunnarsson. Mynd: kirkjan.is/hsh
Fréttir | 29. júní 2022 - kl. 10:50
Nýr vígslubiskup á Hólum

Sr. Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæ í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi er nýr vígslubiskup á Hólum og verður hann vígður á komandi Hólahátíð 14. ágúst. Gísli fékk 316 atkvæði í vígslubiskupskosningu sem fram fór nýlega eða 62,4% atkvæða. Þorgrímur Gunnar Daníelsson, sóknarprestur á Grenjaðarstað, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, fékk 184 atkvæði eða 36,15%. Á kjörskrá voru 740 og greiddu 509 atkvæði, eða 68,78%. 9 tóku ekki afstöðu.

Sr. Gísli er fæddur á Sauðárkróki 5. janúar 1957. Sonur sr. Gunnars Gíslasonar, prests, prófasts og alþingismanns í Glaumbæ og Ragnheiðar Margrétar Ólafsdóttur húsfreyju og safnvarðar í Glaumbæ og eru þau bæði látin. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1977. Guðfræðipróf tók hann 1982 frá Háskóla Íslands. Hann stundaði framhaldsnám við New College, The University of Edinburgh 1986, og við Háskólann í Árósum, Aarhus Universitet 2007-2008, auk ýmissa námskeiða bæði innanlands og erlendis. Lauk diplómanámi á meistarastigi í sálgæslu við endurmenntun H.Í., 2021.

Sr. Gísli hefur verið sóknarprestur í Glaumbæjarprestakalli frá 1982. Sr. Gísli hefur einnig sinnt aukaþjónustu um lengri eða skemmri tíma í öllum prestaköllum í Skagafirði. Starfsmaður fræðsludeildar Þjóðkirkjunnar vegna fermingarstarfa veturna 1989-1991. Sumarið 2007 leysti hann þáverandi sendiráðsprest í Kaupmannahöfn af. Hann hefur gegnt formennsku í ýmsum félögum og nefndum á vegum kirkju, félagasamtaka og sveitarfélaga. Hann hefur setið á kirkjuþingi frá 2006 og var í kirkjuráði þjóðkirkjunnar 2010- 2018.

Eiginkona sr. Gísla er Þuríður Kristjana Þorbergsdóttir, sjúkraliði og bóndi, frá Brúnahlíð í Suður-Þingeyjarsýslu og eiga þau fjögur börn, Gunnar, Þorberg, Aldísi Rut og Margréti.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga