Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 01. júlí 2022 - kl. 09:33
Olís á Skagaströnd breytist í ÓB

Þjónustustöð Olís á Skagaströnd verður breytt í ÓB sjálfsafgreiðslustöð og tekur breytingin gildi um miðjan september. Unnið verður að því að finna rekstraraðila sem getur nýtt húsnæði Olís á Skagaströnd og viðskiptavinum á svæðinu verður tryggt aðgengi að þeim vöruflokkum sem ekki er unnt að nálgast hjá öðrum rekstraraðilum á svæðinu, s.s. bílavörum og gasi. Það verður gert í gegnum umboðsmann Olís á Skagaströnd. Þá verður þjónustu fyrirtækjasviðs jafnframt viðhaldið á svæðinu. Við umbreytingu í ÓB sjálfsafgreiðslustöð verður unnt að bjóða hagstæðari kjör á eldsneyti á umræddri staðsetningu, segir á vef Skagastrandar.

Þar kemur fram að aðgerðin sé hluti af umbreytingarvegferð Olís. Á næstu árum stefnir Olís að því að útvíkka þjónustu- og vöruframboð þjónustustöðva til að mæta breyttum þörfum viðskiptavina. Liður í þeirri vegferð felur í sér fækkun og stækkun þjónustustöðva og af þeim sökum verður tilteknum staðsetningum breytt í sjálfsafgreiðslustöðvar.

„Þrátt fyrir blendnar tilfinningar í tengslum við fækkun þjónustustöðva þá er nauðsynlegt að skjóta traustari stoðum undir rekstur þeirra til að umrædd starfsemi standist tímans tönn. Útvíkkun eftirstandandi þjónustustöðva í þægindamiðstöðvar er sú lausn sem félagið hefur trú á í þessu samhengi. Olís mun eftir fremsta megni lágmarka áhrif umræddra breytinga á þau nærsamfélög þar sem þjónustustöðvum verður breytt í sjálfsafgreiðslustöðvar og þá verður jafnframt leitast við að bjóða fastráðnu starfsfólki störf á öðrum starfsstöðvum Olís eða hjá tengdum aðilum. Með breytingu í sjálfsafgreiðslustöðvar gefst tækifæri til að bjóða viðskiptavinum hagstæðari kjör á eldsneyti og stefnt er að því að húsnæði félagsins á hverjum stað nýtist í rekstur af öðru tagi.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga