Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:17 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:17 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:17 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:17 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:17 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:17 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í gær hófst spennandi nám hjá Textílmiðstöðinni á Blönduósi sem nefnist Fabric Academy eða Textíl Akademía en um er að ræða samstarfsnet Textílsmiðja víða um heim með áherslu á innleiðingu nýrrar tækni við vinnslu textíls. Námið er þverfaglegt og skiptist í tvo megin þætti; námskeið með (net)fyrirlestrum frá september til desember og sjálfstætt rannsóknarverkefni með leiðsögn frá janúar til mars. Sagt er frá þessu á facebooksíðu Textílmiðstöðvarinnar.
Í náminu er lögð áhersla á nýjar leiðir við að skapa, framleiða og dreifa textíl og tískuvörum með því að byggja upp innviði til rannsókna, nýsköpunar og sömuleiðis þekkingarnet sem byggir á hugvits drifinni hönnun, framleiðslu og vörudreifingu. Í samstarfi við helstu sérfræðinga á hverju sviði fá þátttakendur tækifæri til að rannsaka hvernig textíll og tískuiðnaðurinn geta hagnýtt sér nýja tækni, aðferðir og viðskiptamódel.
Fyrirkomulag námsins er staðbundið dreifnám. Nemendur læra að vinna með jafningjum, mentorum og hafa aðgengi að góðri nútímalegri vinnuaðstöðu, aðallega í TextílLab á Blönduósi og einnig í Fab Lab Sauðárkrókur og BioPol á Skagaströnd. Nemendur eru jafnframt tengdir inn í alþjóðlegt umhverfi þar sem þekkingu og reynslu er deilt með gagnvirkum hætti.
Nemendur eru fimm samtals og dvelja á Blönduósi meðan á námi stendur. Umsjónarmaður Textíl-Akademíunnar er Louise Massacrier (önnur frá hægri á myndinni). Nemendurnir fimm eru: Alberte H. Bojesen, Ariane Lugeon, Margrét Katrín Guttormsdóttir, Emma Shannon og Alice Sowa.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |