Úr Húnaþingi. Ljósm: Guðmundur St. Ragnarsson
Úr Húnaþingi. Ljósm: Guðmundur St. Ragnarsson
Tilkynningar | 28. september 2022 - kl. 10:35
Grunnskóli Húnabyggðar auglýsir eftir skólaliða á Skóladagheimili
Tilkynning frá Grunnskóla Húnabyggðar

Grunnskóli Húnabyggðar auglýsir eftir skólaliða á Skóladagheimili í u.þ.b. 50% starf skólaárið 2022 - 2023. Um er að ræða tímabundið starf til loka maí 2023, u.þ.b. 50% starf á Skóladagheimili sem starfrækt er frá hádegi til klukkan fjögur.

Starfið er mjög fjölbreytt þar sem áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við börn og fullorðna. Starfið felst m.a. í því að aðstoða nemendur í mötuneyti og gæta þeirra bæði úti og inni á meðan þeir dvelja á Skóladagheimilinu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal skilað ásamt kynningarbréfi og ferilskrá í tölvupósti á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra,  thorhalla@blonduskoli.is. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 892-4928. Umsóknarfrestur er til 2. október. 

Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga