Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 28. september 2022 - kl. 21:45
Óskað eftir tilboðum í dæluhús við Flúðabakka

Húnabyggð auglýsir á vef sveitarfélagsins eftir tilboðum í gerð dæluhúss vegna vatnsveitu við Flúðabakka, sunnan Svínvetningabrautar. Húsið á að vera timburhús á steyptum sökkli, 23 fermetrar að stærð, klætt með bárujárni að utan, einangrað á grind og klætt að innan. Búnaður dælustöðvarinnar er ekki innifalinn í verkinu og sama gildir um raflagnir í húsið, fyrir utan sökkulskaut. Verkinu skal lokið 31. desember næstkomandi.

Opnunardagur tilboða er 6. október.

Útboðsgögn eru afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi og er hægt að biðja um þau í tölvupósti á netfangið atli@stodehf.is. Opnunardagur tilboða verður 6. október næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga