Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:51 0 0°C
Laxárdalsh. 06:51 0 0°C
Vatnsskarð 06:51 0 0°C
Þverárfjall 06:51 0 0°C
Kjalarnes 06:51 0 0°C
Hafnarfjall 06:51 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Frá fundinum í gær. Mynd: hunathing.is
Frá fundinum í gær. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 05. október 2022 - kl. 13:01
Fjölsóttur fundur á Hvammstanga um nýja nálgun í samgöngumálum

Um 60 manns sátu fund í Félagsheimilinu á Hvammstanga í gær þar sem kynnt var ný hugsun í samgöngumálum. Haraldur Benediktsson alþingismaður sagði frá hugmyndum um hröðun framkvæmda á tengivegum og vísaði þar sérstaklega til Vatnsnesvegar. Magnús Magnússon, formaður byggðarráðs Húnaþings vestra og Gísli Gíslason fyrrverandi stjórnarformaður Spalar fluttu framsögur. Fundarstjóri var Þorleifur Karl Eggertsson oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Sagt er frá þessu á vef sveitarfélagsins.

Þar kemur fram að Haraldur hafi kynnt vinnu sem hann hefur farið fyrir um að heimildir verði gefnar til stofnunar samgöngufélaga um framkvæmdir á tengivegum. Samkvæmt þeim forsendum sem fram komu í kynningu Haraldar gæti slíkt hraðað framkvæmdum á ákveðinni tegund vega um mörg ár. Um langt árabil hafa úrbætur á Vatnsnesvegi verið baráttumál sveitarstjórna Húnaþings vestra. Áfangasigur vannst þegar vegurinn var settur inn á samgönguáætlun en vonbrigði að framkvæmdir eru ekki áætlaðar fyrr en á þriðja tímabili áætlunarinnar, eftir áratug eða meira, sem þó er engin trygging fyrir að ráðist verði í hann á þeim tíma.

Á vef Húnaþings vestra kemur fram að nokkrar umræður hafi spunnust á fundinum en almennt megi segja að fundarmönnum hafi litist vel á tillögurnar. Þorleifur Karl oddviti sveitarstjórnar sagði sveitarstjórn styðja þær svo fremi sem íbúar væru jákvæðir fyrir þessari leið. Næstu skref væri þau að sveitarstjórn vinni að framgangi málsins með samtölum við ráðamenn til að knýja fram nauðsynlegar lagabreytingar til að hugmyndirnar nái fram að ganga.

„Ástæða er til að fagna öllum umræðum um samgöngubætur í sveitarfélaginu og löngu tímabært að brjóta upp núverandi kerfi sem ekki hefur skilað miklum árangri undanfarna áratugi. Vonandi verður það samtal sem hófst á fundinum til þess að hraða framkvæmdum í sveitarfélaginu, ekki bara við Vatnsnesveg, heldur einnig öðrum nauðsynlegum vegabótum í sveitarfélaginu með minnkandi viðhaldsþörf á Vatnsnesveginum í kjölfar uppbyggingar hans. Gerð yrði krafa um að þeir fjármunir sem sparast yrðu innan héraðs því næg eru verkefnin,“ segir á vef Húnaþings vestra.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið