Fréttir | 06. nóvember 2022 - kl. 14:00
Slasaðist í fjallshlíð í Laxárdal

Í gær fékk lögreglan á Norðurlandi vestra tilkynningu um slys í Mánaskál í Laxárdal. Þar hafði einstaklingur runnið niður fjallshlíð langa vegalengd og hlaut nokkuð slæm meiðsli af, að því er segir í færslu á Facebook lögreglunnar. Þar kemur fram að björgunarsveit og sjúkralið, ásamt lögreglu hafi farið á vettvang. Þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til að flytja hinn slasaða á Landspítalann í Reykjavík til aðhlynningar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga