Ljósmynd RAX af Jónmundi. Skjáskot úr þættinum.
Ljósmynd RAX af Jónmundi. Skjáskot úr þættinum.
Fréttir | 06. nóvember 2022 - kl. 14:09
Með níu líf og búinn með sautján

Á menningarvef Vísis er þáttur sem heitir RAX Augnablik en í þeim segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi á Vísi og á Stöð 2+. Í dag segir Ragnar m.a. frá því þegar hann tók myndir af Jónmundi Ólafssyni, bónda í Kambakoti í Skagabyggð.

„Ég hef svo gaman af týpum, það er svo mikið af flottum týpum úti um allt,“ segir Ragnar í þættinum. „Hann er með níu líf og hann er búinn með sautján,“ var það fyrsta sem RAX fékk að heyra um Jónmund.  Ragnar fékk svo að mynda þennan áhugaverða mann og heyra sögurnar hans.

Frásögnina má heyra í heild sinni í þættinum hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga