Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 10. nóvember 2022 - kl. 11:32
Alvarlegur veikleiki í öryggisinnviðum
Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir

Föstudaginn 4. nóvember síðastliðinn voru íbúar, fyrirtæki og stofnanir á Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir þar sem ljósleiðari fór í sundur vegna framkvæmda í Refasveit. Atvikið afhjúpar alvarlega veikleika í öryggisinnviðum í sveitarfélaginu og ef upp hefðu komið tilfelli er varða líf og heilsu íbúa voru engar bjargir til staðar eða möguleiki til að kalla eftir aðstoð þar sem ekki náðist í 112 símleiðis.

Þetta kemur fram í fundargerð sveitarfélagsins frá því í gær. Þar segir að staðan sé enn alvarlegri þar sem enginn sjúkrabíll sé starfræktur í sveitarfélaginu og fyrsta viðbragð sé á hendi ólaunaðra vettvangsliða sem eru meðlimir Björgunarsveitarinnar Strandar.

„Áréttað er að allt síma- og netsamband datt út og því engin leið að hafa samband við aðila nema í gegnum tetrastöðvar sem eru eðli máls samkvæmt ekki til á heimilum. Á hjúkrunarheimili sveitarfélagsins Sæborg datt bjöllukerfið út. Þá eru öll brunavarnarkerfi stofnana háð símasambandi. Það er ósættanlegt með öllu að hluti landsbyggðarinnar búi við mikið óöryggi hvað varðar fjarskipti og bjargir þegar staða sem þessi kemur upp,“ segir í fundargerðinni.

Sveitarstjóra var falið að óska eftir samtali við þar til bæra aðila til þess að ræða stöðuna, sem sé óviðunandi með öllu og ógni búsetuöryggi í landshlutanum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga