Höfðinn. Ljósmynd: Skagastrond.is
Höfðinn. Ljósmynd: Skagastrond.is
Fréttir | 12. nóvember 2022 - kl. 10:49
Framkvæmdir í Spákonufellshöfða heimilar

Umhverfisstofnun hefur veitt leyfi fyrir framkvæmdum í Spákonufellshöfða en fyrirhugað er að reisa þar fuglaskoðunarhús, bæta og afmarka bílaplan, bæta merkingar og gera úrbætur og viðbætur á göngustígum fólkvangsins. Spákonufellshöfði er friðlýstur og því öll mannvirkjagerð og hvers konar annað jarðrask óheimilt nema með leyfi Umhverfisstofnunar.

Á sveitarstjórnarfundi Sveitarfélagsins Skagastrandar í vikunni var lagt fram erindi Umhverfisstofnunar um leyfi til framkvæmdanna. Esja Architecture sótti um leyfið fyrir hönd sveitarfélagsins og eru framkvæmdir áætlaðar næsta vor og haust. Fuglaskoðunarhúsið verður sett upp norðanvert í fólkvanginum og frá bílastæði verður lagður stígur, aðgengilegur fyrir hjólastóla á um 300 metra kafla. Stígurinn mun liggja upp að steyptum palli gamallar bryggju sem er á svæðinu þar sem settur verður upp útsýnispallur úr timbri með sætum.

Framkvæmdunum verður skiptu upp í tvo hluta. Næsta vor hefjast framkvæmdir við göngustíga, bílastæði og fuglaskoðunarhús og um haustið verður útsýnispallurinn gerður, stígar gerðir hjólastólafærir og skilti sett upp.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga