Málverk eftir Guðrúnu Ósk
Málverk eftir Guðrúnu Ósk
Fréttir | 12. nóvember 2022 - kl. 11:02
Kynvættir meðal vors í Listakoti Dóru

Málverkasýningin Kynvættir meðal vors verður opnið í sýningarsal Listakots Dóru í Vatnsdalshólum laugardaginn 19. nóvember klukkan 13-18 og verður hún opin til 20. desember. Listakonan, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir verður á staðnum opnunarhelgina en eftir það sé eigandi sýningarsalarins um sýninguna. Þema hennar eru kynvættir úr þjóðsögum sem eru nánast gleymdir í skjölum og geymslum.

Guðrún Ósk er stúdent af Myndlistabraut frá FB. Hún hefur verið viðloðandi listaheiminn frá barnsaldri og tekið þátt í sýningum og viðburðum lengi. Hins vegar er þetta fyrsta skiptið sem hún sýnir ein. Einnig hefur hún unnið við alls konar list og sköpun og er á lokasprettinum að gefa út bók sem kemur út eftir fáeinar vikur. Bókin heitir Dagbók drekagyðjunnar og gerist á tímum galdra, töfra og ævintýra. Bókin verður kynnt og seld í Listakotin Dóru um leið og hún kemur út.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga