Mynd: samgongustofa.is
Mynd: samgongustofa.is
Fréttir | 20. nóvember 2022 - kl. 07:28
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn í dag. Í ár verður sérstök áhersla lögð á öryggi óvarinna vegfarenda. Minningarathafnir eru hringinn í kringum landið af þessu tilefni, þar á meðal við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 14, eftir þriggja ára hlé vegna faraldursins. Þar verða flutt ávörp og einnig verður fórnarlamba umferðaslysa minnst með einnar mínútu þögn. Minningarathafnir víðs vegar um landið eru haldnar á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. 

Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum klukkan 14 í dag.

Tilgangur með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf. 

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. 

Að minningardeginum standa Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Landsbjörg, lögreglan og Vegagerðin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga