Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:07 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Sveitarfélagið Húnabyggð auglýsir á vef sínum tvo opna hugmyndafundi sem haldnir verða í næstu viku. Á þeim verður safnað saman hugmyndum fólks um uppbyggingu gamla bæjarhluta Blönduóss. Fyrri fundurinn verður haldinn 22. nóvember í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19 og seinni fundurinn 23. nóvember í Mengi á Óðinsgötu 2 í Reykjavík klukkan 19. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta.
Í auglýsingunni segir:
Einkaaðilar hafa á undanförnum árum verið að byggja upp þjónustustarfsemi í gamla bænum og nú hafa sterkir fjárfestar bæst í hópinn og sveitafélagið hefur ákveðið að fylgja þessari þróun fast eftir og klára deiliskipulag svæðisins.
Áður en það er gert vill sveitarfélagið safna saman hugmyndum þeirra sem áhuga hafa á því að leggja þessari vinnu lið og hafa þannig úr sem flestum hugmyndum að moða þegar deiliskipulagið er mótað í endanlegt form.
Á hugmyndafundinum mun sveitarfélagið kynna megin drög þeirrar hugsunar sem það hefur sett í þessari vinnu en eins og flestum er kunnugt um hefur vinnan fram að þessu tekið útgangspunkt í skýrslu sem gerð varð um gamla bæinn og Klifamýri þar sem áhersla var lögð á verndarsvæði í byggð.
Áhugasamir geta séð húsakönnun svæðisins sem gerð var af Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt og fyrirtæki hennar TKJ árið 2015 hér FSK Greinarger360 2015.dgn.
Á fundinum mun InfoCapital einnig kynna sín áform um uppbyggingu en fyrirtækið hefur þegar keypt hótelið, Aðalgötu 9 (þar sem brauðgerð Krútt var til húsa), tvær hæðir í Helgafelli og Pétursborg.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |