Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 18. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:50 0 0°C
Laxárdalsh. 08:50 0 0°C
Vatnsskarð 08:50 0 0°C
Þverárfjall 08:50 0 0°C
Kjalarnes 08:50 0 0°C
Hafnarfjall 08:50 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 17. nóvember 2022 - kl. 09:12
Bjarmanes - Menningarmiðja Norðurlands
Frá Evu og Erlu

Næst komandi föstudag opnar Bjarmanes menningar-og samveruhús á Hólanesvegi, Skagaströnd. Að stofnun Menningarmiðju Norðurlands sem rekur Bjarmanes: menningar- og samveruhús standa vinkonurnar G. Eva Guðbjartsdóttir og Erla María Lárusdóttir sem búsettar eru á Skagaströnd. Þeim fannst vanta vettvang þar sem hægt væri að ýta undir menningu, listir og samveru á Skagaströnd og ákváðu að taka málin í eigin hendur.

Tækifæri til að gera eitthvað meira og betra fyrir samfélagið

Tilgangur með stofnun félagsins er að skapa vettvang fyrir listamenn, hönnuði og skapandi fólk á Norðurlandi. Veita íbúum aðgang að samkomustað sem einnig er með fjölbreytta dagskrá á boðstólnum. Mynda eftirsóknaverða sérstöðu við ströndina á Skagaströnd, halda tónleika, námskeið, fræðslukvöld, samverukvöld, bókaklúbba, listasýningar, upplestur ofl. Og þannig skapa heillandi samverustað sem tengir saman íbúa og gesti staðarins.

Hér er tækifæri til að að gera eitthvað meira og betra fyrir samfélagið í þágu menningar, sögu og listsköpunar. Skapa andrúmsloft þar sem fólki líður vel að koma og fá sér kaffi, spjalla og njóta alls hins góða sem Bjarmanes hefur upp á að bjóða. Lögð verður áhersla á að fá íbúa sveitarfélagsins til þess að taka þátt í uppbyggingu starfsins með fjölbreyttum hætti.

Einnig býðst íbúum að leigja húsnæðið undir einkasamkvæmi.

Huggulegt og fullt af sál

Bjarmanes er eitt af elstu húsum Skagastrandar. Það var byggt árið 1912 og hefur sinnt fjölmörgum hlutverkum í áranna rás en þar hefur m.a. verið verslun, lögreglustöð, barnaskóli og kaffihús.

Húsið er sérlega huggulegt og stendur við sjóinn með stórkostlegt útsýni yfir Húnaflóann, Strandafjöllin og höfnina.

Fjölbreytt dagskrá á opnunardaginn

Bjarmanes opnar formlega föstudaginn 18.nóvember með ljúfri dagskrá og léttum veitingum. Opnunin hefst kl: 20:00 með kynningu á starfseminni og myndlistasýningu þar sem Gígja Óskarsdóttir sýnir verk sín. Klukkan 20:30 hefst tónlistarflutningur þar sem Arna Rún og Snæfríður Dögg koma fram. Þess má geta að þær allar eru frá Skagaströnd.

Á laugardaginn klukkan 14:00 tökum við þátt í Evrópsku Nýtnivikunni með eins konar fataskiptimarkaði með það að markmiði að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu og huga að endurnýtingu. Á sama tíma opnar listasýning í kjallara Bjarmaness eftir þrjár erlendar listakonur úr NES listamiðstöðinni á Skagaströnd.

Verið hjartanlega velkomin!

Eva & Erla

Fylgist með okkur á facebook á http://www.facebook.com/menningarmidjanordurlands

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið