Fréttir | 17. nóvember 2022 - kl. 14:27
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins segir að valið hafi staðið á milli 36 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Tilnefnd eru 12 efstu bú ársins að loknum útreikningi, í ár voru nokkur bú jöfn í tólfta sæti og eru búin því 15 í ár. Þar á meðal eru nokkur húnvetnsk hrossaræktunarbú.
Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2022 sem haldin verður á Sprettshöllinni sunnudaginn 20. nóvember. Ræktunarbú ársins verður verðlaunað á þeim viðburði.
Tilnefnd bú eru eftirfarandi í stafrófsröð:
- Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarsson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
- Austurás, Haukur Baldvinsson, Ragnhildur Loftsdóttir og fjölskylda
- Árdalur, Ómar Pétursson, Pétur Jónsson og fjölskylda
- Fákshólar, Jakob Svavar Sigurðsson, Helga Una Björnsdóttir
- Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
- Hjarðartún, Óskar Eyjólfsson, Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir, Hans Þór Hilmarsson og Arnhildur Helgadóttir
- Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
- Lækjamót, Sonja Líndal Þórisdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Vigdís Gunnarsdóttir, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þórir Ísólfsson og Elín Rannveig Líndal
- Prestsbær, Inga og Ingar Jensen
- Rauðalækur, Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Eva Dyröy og Kristján Gunnar Ríkharðsson
- Skagaströnd, Sveinn Ingi Grímsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson
- Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir
- Steinnes, Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir, Jón Árni Magnússon og Berglind Bjarnadóttir
- Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
- Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth
Á vef RML er bent á að mörg þessara búa voru einnig með afkvæmahross á árinu sem taldi til hækkunar meðaltals aðaleinkunnar og fjölda sýndra hrossa.