Fréttir | 19. nóvember 2022 - kl. 13:59
Samtal um Holtavörðuheiðarlínu 3

Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum Holtavörðuheiðarlínu 3 milli Holtavörðuheiðar og Blöndu. Á vef Landsnets segir að lagning línunnar sé mikilvægur hlekkur í nýrri kynslóð byggðalína og að meginmarkmiðið sé að auka afhendingaröryggi og afhendingargetu á landinu og tryggja að flutningskerfið standi ekki í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og eðlilegri þróun byggða.

„Með samráði og samtali við landeigendur og hagaðila, rannsóknum og greiningum verður farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum til að fá betri mynd af verkefninu, möguleikunum og hvernig línuleiðum verður háttað,“ segir á vef Landsnets.

Opnir fundir fyrir landeigendur og aðra hagaðila verða haldnir þriðjudaginn 22. nóvember á Hótel Laugarbakka í Miðfirði klukkan 20:00-21:30 og miðvikudaginn 23. nóvember í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 16:30-18:00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga