Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:19 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga fagnaði 110 ára afmæli í síðustu viku með glæsilegri veislu á Blönduósi. Aðildarfélögum USAH, fulltrúum sveitarfélaga, Ungmennafélagi Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var boðið til afmæliskvöldverðar á B&S Restaurant. Á meðal gesta var Gunnar Þór Gestsson, varaformaður UMFÍ.
Gunnar Þór afhenti Snjólaugu Jónsdóttur, formanni USAH, viðurkenningarskjöld frá UMFÍ í tilefni dagsins og sagði stjórn, sjálfboðaliða og starfsfólk aðildarfélaga USAH hafa tekist afar vel að vinna með öðrum og efna til ýmissa samstarfsverkefna. Svo vel hafi tekist til að UMFÍ hafi á dögunum veitt sambandinu Hvatningarverðlaun fyrir verkefni sem stuðlað hefur að góðu og árangursríku samstarfi á milli félaga á svæði USAH allt inn í Skagafjörð.
Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:
Gullmerki ÍSÍ
Guðmann Jónasson
Fyrir óeigingjarnt starf hjá Skotfélaginu Markviss, við uppbyggingu, þjálfun, mótahald og stjórnarsetu. Ásamt því að keppa fyrir hönd félagsins og átt sæti í landsliði Íslands. Einnig hefur hann setið í stjórn USAH sem varamaður og meðstjórnandi.
Jóhann Guðmundsson (1946)
Fyrir ritnefndarstörf vegna Húnavökuritsins í 50 ár ásamt öðrum störfum innan aðildafélaga USAH.
Silfurmerki ÍSÍ
Auðunn Steinn Sigurðsson
Fyrir óeigingjarnt starf innan USAH og aðildafélaga þess. Stjórnarsetu í USAH, UMF. Hvöt og Golfklúbbnum ÓS.
Einar Stefánsson
Fyrir óeigingjarnt starf hjá Skotfélaginu Markviss við uppbyggingu svæðisins, stjórnarsetu og aðstoð við mótahald
Guðrún Sigurjónsdóttir
Fyrir óeigingjarnt starf innan USAH og aðildafélaga þess. Stjórnarsetu í USAH ásamt stjórnarsetu í UMF. Geislum.
Ingibergur Guðmundsson
Fyrir óeigingjarnt starf innan USAH og aðildafélaga þess ásamt ritnefndarstörfum og síðar ritstjórastörf vegna Húnavökuritsins.
Jón B Kristjánsson
Fyrir óeigingjarnt starf hjá Skotfélaginu Markviss. Hann hefur sinnt stjórnarstörfum, uppbyggingu, nýliðaæfingum og mótahaldi hjá félaginu ásamt því að keppa fyrir hönd félagsins.
Páll Ingþór Kristinsson
Fyrir ritnefndarstörf vegna Húnavökuritsins ásamt öðrum störfum innan aðildafélaga USAH.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |