Fréttir | 20. nóvember 2022 - kl. 14:14
Samstarfssamningur endurnýjaður

Selasetur Íslands og Hafrannsóknarstofnun hafa endurnýjað samstarfssamning um eflingu rannsókna á selum við Ísland á starfsstöðinni á Hvammstanga og þá sérstaklega á vöktun á stofnstærð útsels og landsels. Þá kveður samningurinn á um gagnasöfnun og rannsóknir sem stuðla að bættri ráðgjöf í samræmi við stjórnunarmarkmið stjórnvalda.

Sagt er frá þessu á vef Selasetursins og þar segir: „Aðilar eru sammála um að leita leiða til að fjölga starfsmönnum þannig að styrkja megi rannsóknarstarfsemi Selaseturs Íslands og starfsstöð Hafrannsóknarstofnunar á Hvammstanga.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga