Gísli Einarsson
Gísli Einarsson
Tilkynningar | 21. nóvember 2022 - kl. 09:24
Vetrarferð Félags eldri borgara í Húnaþingi janúar 2023
Frá ferðanefndinni

Sunnudaginn 15. janúar verður farin dagsferð í Borgarnes. Á Sögulofti Landnámssetursins hlustum við kl. 16.00 á hinn eina sanna Gísla Einarsson. 

Nánari kynning:

Ferðabók Gísla Einarssonar (hvorki Eggerts né Bjarna)

Árið 1772 kom út í fyrsta sinn Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar sem byggir á rannsóknum fræðimannana tveggja á landsháttum á Íslandi og lífi Íslendinga. Síðan hefur margt breyst en það hefur farist fyrir að uppfæra rannsóknir Eggerts og Bjarna, fyrr en nú.
Hinn víðföruli Borgfirðingur, Gisli Einarsson, hefur undanfarinn aldarfjórðung ferðast fram og aftur um landið, hring eftir hring og aftur til baka og stúderað landshætti og líf landans með það að markmiði að taka upp þráðinn þar sem Eggert og Bjarni skildu við. Það markmið náðist ekki!
Vinnugbrögð Gísla eru ófagleg og hvarvetna er kastað til höndum. Útkoman er því einhverskonar mislukkað grín þar sem hæðst er á ósmekklegan hátt að einstaka byggðarlögum og íbúum þeirra.
Þar sem enginn bókaútgefandi hefur sýnt verkinu áhuga (eðlilega) þá verður það flutt munnlega á Sögulofti Landnámssetursins í ársbyrjun 2023.
Höfundur og flytjandi: Gísli Einarsson

Eftir sýninguna verður borðað saman í Landnámssetrinu. Sérstakur sýningarhópmatseðill að hætti Gísla Einarssonar verður í boði.

Það er mikilvægt að fá hugmynd um hugsanleg þátttakendum til að hafa hugmynd um fjölda miða sem þarf að panta.

Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst eða fyrir 6. desember með venjulegum fyrirvara.

Magnús netf. mao@centrum.is  s. 898 5695  Kolla netf. gudrag1@simnet.is  s.  6903124   

Endanlega þátttöku þarf síðan að staðfesta viku af  janúar þegar kostnaður liggur fyrir.

Ferðanefndin.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga