Tilkynningar | 22. desember 2022 - kl. 08:26
Jólapóstur knattspyrnudeildar Hvatar á Blönduósi

Knattspyrnudeild Hvatar vill minna á að á morgun 23. desember milli kl. 12:00-14:00 verður hægt að skila jólapökkum og jólabréfum sem jólasveinar koma svo til skila á aðfangadagsmorgun. Tekið verður á móti kortum og pökkum á skrifstofu deildarinnar að Húnabraut 4 bakatil.

Verð er 3.000 kr. á heimilið fyrir pakka og 300 kr. fyrir stykkið af bréfum.

Knattspyrnudeildin vill einnig óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga