Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:44 0 0°C
Laxárdalsh. 12:44 0 0°C
Vatnsskarð 12:44 0 0°C
Þverárfjall 12:44 0 0°C
Kjalarnes 12:44 0 0°C
Hafnarfjall 12:44 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Slökkviliðsmenn á Skagaströnd. Mynd: FB/Slökkvilið Skagastrandar
Slökkviliðsmenn á Skagaströnd. Mynd: FB/Slökkvilið Skagastrandar
Fréttir | 30. desember 2022 - kl. 17:52
Slökkvilið Skagastrandar gerir upp árið

Á facebooksíðu Slökkviliðs Skagastrandar er litið um öxl og farið stuttlega yfir starf þess á árinu sem er að líða. Þar kemur meðal annars fram að slökkviliðið samanstendur af 15 einstaklingum og að töluverð endurnýjun mannskaps hafi orðið á árinu, menn hætt sökum aldurs og af öðrum ástæðum.

Facebook færslan er þessi:

Kæru vinir. Nú þegar árið 2022 er senn á enda er ekki úr vegi að líta um öxl og fara stuttlega yfir starf slökkviliðs Skagastrandar á árinu.

Slökkvilið Skagastrandar samanstendur af 15 einstaklingum. Töluverð endurnýjun mannskaps hefur átt sér stað á undanförnu ári, menn hafa hætt sökum aldurs og annara ástæðna og langar mig að nota þetta tækifæri til að þakka þeim kærlega fyrir sitt starf í þágu liðsins. Sumir hafa verið á útkallsskrá í yfir 40 ár og eiga allir þessir kappar hrós skilið. Einnig er vert að minnast á að fyrsta konan gekk í okkar raðir í langan tíma og verður hún vonandi ekki sú síðasta.

Breytingar hafa orðið á þeirri línu sem minni slökkvilið eiga að starfa eftir. Það sem áður voru svokölluð áhugamannalið eru nú í dag slökkvilið með hlutastarfandi mannskap og skal helst eitt yfir alla ganga hvað varðar æfingar, menntun og líkamlegt heilbrigði. Því hefur verið tekið þétt á málunum hvað þetta varðar og nú í vetur útskrifuðust t.d 5 einstaklingar úr 120 klst námi sem hlutastarfandi slökkviliðsmenn. Auk þess var nokkuð um að menn ættu eftir hluta námskeiða sem reynt var að klára eftir fremsta megni. Einnig sat slökkviliðsstjóri námskeið í Stjórnun slökkviliða, Þjálfunarstjóranámskeið og námskeið sem eldvarnareftirlitsmaður.

Verkefni liðsins hafa verið fjölbreytt á árinu. Ráðist var í að mæla rennsli og þrýsting allra brunahana á Skagaströnd, froðurennibraut, skrúðganga og forvarnaverkefnið Logi og Glóð settu meðal annars svip sinn á árið ásamt mörgu fleira.

Að lokum langar mig að minna á eldurinn getur verið bæði blessun og böl, farið því varlega um áramótin og munum að nota hlífðargleraugu og hanska við meðhöndlun flugelda.

Slökkvilið Skagastrandar óskar öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið