Fréttir | 02. janúar 2023 - kl. 14:31
Ný heimasíða Ungmennafélagsins Hvatar
Tilkynning frá aðalstjórn Umf. Hvatar

Ný heimasíða Ungmennafélagsins Hvatar hefur nú verið sett í loftið, www.hvot.is. Er það von félagsins að ný heimasíða muni gjörbreyta upplýsingagjöf varðandi starfsemi félagsins til iðkenda, félaga, foreldra og annarra hagsmunaaðila enda munu framangreindir aðilar nú geta nálgast allar upplýsingar um æfingagjöld, æfingatíma, þjálfara o.fl. á einum stað. Þá er það von félagsins að heimasíðan muni jafnframt stuðla að aukinni og betri varðveislu á sögu og menningu félagsins.

Aðalstjórn Ungmennafélagsins Hvatar vill koma á framfæri sérlegum þökkum til þeirra aðila sem styrktu gerð nýrrar heimasíðu:

         KPMG ehf.

         Átak ehf.

         Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ

Allar ábendingar og eða fyrirspurnir um nýja heimasíðu Umf. Hvatar óskast hér: https://www.hvot.is/is/hafa-samband

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga