Tanja M. Ísfjörð. Mynd: feykir.is
Tanja M. Ísfjörð. Mynd: feykir.is
Fréttir | 04. janúar 2023 - kl. 15:01
Lesendur Feykis völdu Tönju M. Ísfjörð mann ársins 2022 á Norðurlandi vestra

Líkt og undanfarin ár stóð Feykir fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gafst kostur á að velja úr hópi þeirra sem voru tilnefndir af lesendum. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar sem teknar voru til greina og varð niðurstaðan sú að Tanja hlaut flest atkvæði í valinu.

Tanja er 27 ára brottfluttur húsvískur Sauðkrækingur sem býr í Sola í Noregi, trúlofuð, á tvö börn, Aríu Björk sex ára og Eið Bjarka fjögurra ára og einnig eru tveir hundar á heimilinu. Hún er með bachelorgráðu í sálfræði og hefur barist gegn kynbundnu ofbeldi seinustu sjö árin og nú seinasta eitt og hálft árið með samstarfskonum í Öfgum.

„Eftir að hafa upplifað mikla útskúfun í samfélaginu tók Tanja völdin í eigin hendur og hélt fyrstu Druslugönguna sem haldin hefur verið á Sauðárkróki við góðar undirtektir. Tanja er í Öfgum sem er femínista hópur sem berst gegn kynbundnu ofbeldi og styður við þolendur kynferðisofbeldis. Hún tók þátt í að skrifa skuggaskýrslu um kvennasáttmálann og ávarpaði þing Sameinuðu þjóðanna,“ segir í tilnefningu um Tönju.

Á vef Feykis má lesa viðtal við Tönju. Hún segir að viðurkenningin sé þvílíkur heiður, hún sé meir og þakklát fyrir að hafa verið tilnefnd og hvað þá fyrir að hafa verið kosin. „Það hefur verið mjög erfitt fyrir mig seinustu ár að koma heim á Krók þannig þetta kom mér mjög á óvart og það er erfitt að lýsa því með orðum hvað mér þykir vænt um þetta. Takk!“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga