Fréttir | 06. janúar 2023 - kl. 12:14
Viðburður í Bjarmanesi á morgun

Í menningar- og samveruhúsinu Bjarmanesi á Skagaströnd verður viðburður á laugardaginn en þá ætlar ljósmyndarinn og fyrirlesarinn Esther Horvath að sýna og segja frá störfum sínum á norðurslóðum. Viðburðurinn hefst klukkan 15 og verður heitt á könnunni. Allir eru velkomnir. Ester er m.a. ljósmyndari fyrir National Geographic og Alfred Wegener stofnunina.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga