Blönduóshöfn
Blönduóshöfn
Fréttir | 06. janúar 2023 - kl. 14:33
Enn minnkar byggðakvótinn til Blönduóss

Byggðaráð Húnabyggðar er ekki sátt við þróun á úthlutun almenns byggðakvóta en Blönduós fékk nýlega úthlutað 15 þorskígildistonn fyrir fiskveiðiárið 2022-2023. Samkvæmt úthlutunarskjali er jafnmiklu úthlutað til Blönduóss nú og gert var fiskveiðiárið 2021-2022 en svo virðist sem gleymst hafi að gera ráð fyrir að í fyrra bættust við 4 þorskígildistonn. Úthlutaður byggðakvóti til Blönduóss minnkar því um 21% milli fiskveiðiára eða úr 19 tonnum í 15. Byggðaráð hefur falið sveitarstjóra að andmæla formlega þessari þróun, eins og segir í fundargerð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga