Hvammstangi. Mynd: Róbert Daníel Jónsson
Hvammstangi. Mynd: Róbert Daníel Jónsson
Fréttir | 07. janúar 2023 - kl. 10:57
Opið hús í ráðhúsi Húnaþings vestra vegna breytinga á aðalskipulagi

Mánudaginn 9. janúar 10-12 verður opið hús í ráðhúsi Húnaþings vestra þar sem fólki gefst kostur á að kynna sér breytingar sem fyrirhugaðar eru innan þéttbýlis á Hvammstanga. Um er að ræða breytingu á íbúðarbyggð ÍB 9 við Lindarveg sem er í uppbyggingu og eru þar risin nokkur íbúðarhús. Svæðið er samkvæmt núgildandi skipulagi skilgreint sem svæði fyrir frístundabyggð en með breytingunni er verið að fella þá skilgreiningu niður.

Einnig verður heimild fyrir að mannvirki verði á tveimur hæðum án breytinga á hámarks hæðarkóta í gildandi deiliskipulagi við Lindarveg 2,4,6 og 8. Jafnframt er um að ræða breytingar á íbúðarbyggð Í7 sunnan við Eyri og tilfærsla á landnotkunarreit AT7. Svæðið sunnan og norðan við Eyri sem breytingin nær til er að mestu tún og beitarlönd og byggt hefur verið á öllum fjórum lóðunum á svæði ÍB7.

Á fundi þann 8. desember síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Húnaþings vestra að auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingarnar á aðalskipulagi 2014-2026 samkvæmt skipulagslögum og skipulagsreglugerðar. Fram kemur á vef Húnaþings vestra að skipulagslýsingin fyrir deiliskipulagstillöguna sé ekki matsskyld samkvæmt reglugerð um mat á umhverfisáhrifum og í samræmi við aðalskipulag Húnaþings vestra 2014-2026. Skipulagslýsinguna má nálgast hér.

Frestur til að skila inn ábendingum rennur út 27. janúar næstkomandi og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfpósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga